Monday, March 16, 2009

Bollywood, 3. kafli

Jæja, hér eru nýjustu Bollywood-fréttir.

Í tímanum í kvöld lærði ég ellefu sekúndur af þessum dansi:



Þeir sem hafa áhuga á að vita nákvæmlega hvaða ellefu sekúndur ég lærði geta spólað á 0.55 og horft þangað til talninging sýnir 1.06. Þess má taka fram að þetta virkar kannski létt (eða eiginlega virkar þetta bara brjálað erfitt) en við lærðum þetta sem sagt a.m.k. helmingi hægar, ef ekki bara þrisvar sinnum hægar og með öllum smáatriðunum voða flottum.

Svo lærðum við fullt af fallegum indverskum handahreyfingum! Ótrúlegt hvað maður getur verið kvenlegur og sexí með höndunum einum saman (eða kennarinn a.m.k., veitiggi alveg hvort ég er að massa kvenleikann og kynþokkann, en...maður reynir).

Það versta er að ég er búin að gleyma öllu saman núna! Það er sem ég segi; menntun er sóað á mig því ég er með gullfiskaheila. Sem betur fer vinnur heilinn minn úr músík á þann hátt að ég bara fatta hana sem þýðir að ég man hana af því að heilanum finnst það sem ég heyri meika sens. En ef ég þarf að muna eitthvað bara af því bara þá er það farið um leið! En þá er nú gott að geta spólað á 0.55 og rifjað upp dansinn. Spurning hvort youtube er með svona hægja á-fídus?

Alla vega, ég fór þreytt og mygluð í danstímann og kom kát og glöð til baka. Þá er þetta að virka!

0 comments: