Jæja, þá er komið að því! Ég lofaði bloggi um tónsmíðaferlið í stykkinu mínu sem verður flutt á laugardaginn nk. Verkið heitir "Krónan" og er samið upp úr línuritum sem hafa eitthvað með bankahrunið og það allt saman að gera. Næstu daga mun ég birta á hverjum degi brot úr dagbókinni. Síðasta dagbókarbrotið mun birtast á laugardaginn, en þá verður stykkið frumflutt í Köben.
Ég biðst velvirðingar á að það birtist ekkert í gær, ég var netlaus á eyju sem heitir Fanø. En nýjustu fréttir eru að æfingar eru hafnar og ganga bara nokkuð vel sýnist mér, en jiminn ég er ekkert að skrifa eitthvað skítlétt sé ég. Og það voru alveg líflegar umræður hérna áðan um rithátt og vesen og ég veit ekki hvað og hvað, en ég hef fulla trú á hljómsveitinni og stjórnandanum. Ofsa spennó. En - hér eru fyrstu dagbókarfærslur um gerð verksins. Geriðisvovel:
Forsagan:Síðasta haust datt mér í hug að búa til tónverk úr fjármálalínuritum og gengi íslensku krónunnar gagnvart þeirri dönsku. Þetta hljómaði þá og hljómar enn á mig eins og ágætis hugmynd því þessi gengisdans er búinn að lita líf okkar í eitt og hálft ár, þ.e.a.s. síðan við fluttum til Köben í júlí 2007.
Ekki óraði mig þó fyrir því að þróun íslensku krónunnar (og þ.a.l. tónverksins líka ;)) ætti eftir að vera jafn dramatísk og raun bar vitni. Í október 2008 náðu línuritin (og tónverkið væntanlega með) hámarki þegar bankahrunið varð. Og það óvenjulega gerðist með gengi krónunnar að það var fryst og stóð þ.a.l. í stað sem þráðbein lárétt lína! Mjög spennandi fyrir tónverkið.
Þar sem ég var að vinna í öðrum verkum á þessum tíma þá lét ég mér nægja að safna upplýsingum og hugsa um verkið. Palli gaukaði að mér ýmsum línuritum og pésum sem hann las á netinu (enda meira inni í svona hlutum en ég). Kom þar sterkust inn greinargerðin "Fjármálakreppur eiga sér upphaf og endi" frá greiningardeild Glitnis frá október 2008. Seinna skrifaði ég greiningardeildinni bréf og bað þau um tölur, m.a. hvað varðar skuldatryggingaálag og viðskiptajöfnuð. Sá sem svaraði mér var hinn liðlegasti og jákvæðasti og kom með góðar hugmyndir varðandi notkun á t.d. skuldatryggingaálaginu í tónverkið, þ.e. að nota það í hljóma þar sem þetta væru tölur frá þremur bönkum. Góð hugmynd :)!
En það var fyrst í dag, 26. janúar, sem ég settist niður og byrjaði að vinna úr upplýsingunum, þ.e. byrjaði formlega að semja! Og þvílíkur dagur!:
mánudagur 26. jan. 2009:Í dag prentaði ég út töflur um íslensku krónuna gagnvart dönsku krónunni frá 19.7.07 til dagsins í dag. Prentarinn söng svo skemmtilega á meðan hann prentaði út, þannig að ég skrifaði niður í nótur hljóðið sem kom úr honum. Ég ætla að nota þetta sem efnivið þegar ég fer að vinna úr töflunni :). (Innskot: Svo henti ég þessari hugmynd út síðar og notaði hana ekki).
Eftir það settist ég niður við tölvuna og pikkaði upp mótmælahljóð úr rúv-fréttum frá 21. jan sl. Ég transkriberaði hljóðum í dollum og dósum, bílflautum, lúðrum og dómaraflautum. Svo prófaði ég að fylgja "forminu" í fréttatímanum til að búa til form fyrir mig, þ.e. stundum var verið að taka viðtal við einhvern inni í Alþingishúsinu og þá heyrðust ákveðin hljóð. Svo var verið að taka viðtal við einhvern fyrir utan stjórnarráðið og þá heyrðust öðruvísi hljóð. Svo var skipt á milli þessara tveggja staða sem þýðir að ég skipti líka á milli þessara tveggja hluta (A og B kaflar :p). (Henti þessu formi út síðar líka, en notaði hljóðin).
Vinnudeginum lauk á því að ég tók ýmis línurit og súlurit og dró í gegn á nótnapappír úti í glugga. Þetta eru frekar dramatísk rit þannig að rosalegustu línuritin spanna alveg 3-4 nótnalínur. Ég er ekki alveg búin að sjá út hvað ég geri við þetta en þetta lítur skemmtilega út. Og svo var frábært súlurit yfir skuldir og eignir heimilianna frá 1998-2008 sem ég dró í gegn fyrir píanó. Eign og hrein eign lentu í hægri hendi í g-lykli en skuldir í vinstri í f-lykli. Þetta gætu verið einhvers konar clusterar, en ég á eftir að vinna nánar úr því. (Henti þessu út líka. Svona eru tónsmíðar, maður byrjar einhvers staðar en notar kannski ekki það fyrsta sem manni dettur í hug).
Í dag fór ríkisstjórnin frá og mótmælendur fögnuðu í miðbænum.
þriðjudagur 27. jan. 2009:Ég sit og skoða tölurnar sem ég prentaði út í gær, þ.e.a.s. þessar sem sungu svo fallega í prentaranum. Þetta eru tölur um ikr. gangvart dkr. frá 19.07.07 til 26.01.09. Þarna sé ég að fyrir eina íslenska krónu gat ég keypt 0,09095 danskar krónur fyrir einu og hálfu ári en í dag (eða í gær réttara sagt) fæ ég 0,04672 danskar krónur fyrir eina íslenska. Sem þýðir gróflega að ég þarf að borga um 2 íslenskar krónur fyrir það sem ég gat keypt fyrir 1 íslenska krónu fyrir einu og hálfu ári.
Ég skoða tölurnar með tilliti til aukastafa. Aukastafirnir eru á bilinu 3-6, oftast 6. Svo tek ég eftir því að með reglulegu millibili endurtaka tölurnar sig nákvæmlega eins. Það er sem sagt mynstur í þessu; þ.e. að sama talan kemur stundum þrisvar í röð. Þá fatta ég að þetta eru auðvitað helgarnar, þ.e. föstudagur, laugardagur og sunnudagur (engar gengisbreytingar um helgar). Svo á síðustu blaðsíðunni kemur sama talan sex sinnum í röð. Þetta eru jólin.
Mér finnst eins og fortíðin rifjist upp fyrir mér þegar ég renni í gegn um þessar tölur sem mótast af einhverju leiti af virkum dögum, frídögum og stórhátíðum. Skrýtið að tölur geti haft tilfinningaleg áhrif.
Mér finnst líka eins og ég finni tónhæðina síga eftir því sem tölurnar lækka. Ég hugsa að ég reyni að nota fjölda aukastafa og eitthvað slíkt til að ákvarða hvernig ég læt tónhæðina lækka skipulega? Sjáum til, best að halda áfram...
Hvað ætli ég sé lengi að "spila" í gegn um eitt og hálft ár? Ég þarf að muna eftir að taka tímann á því þegar ég er búin að skrifa allt gengi ikr. gagnvart dkr. niður. Spurning um að hafa mismunandi hraða á því?
Ég er nú meiri nördinn! Ég nýt þess að fara í gegn um tölurnar og heyra þær fyrir mér músíklega. Vá, og stundum eru svo fallegar breytingar frá tölu til tölu, eins og t.d. frá 42591 yfir í 42251endurtekið þrisvar, eða frá 43548 til 43478 endurtekið þrisvar. Fagurt :).
(Innskot 2. júní 2009: Þessar tölur nota ég t.d. mjög mikið í pikkolóflautunni. Ofsa skemmtó).